Einelti...

Ég var að lesa inná bloggsíðunni hjá Hólmfríði Guðlaugu Einarsdóttur hér á mbl.is, þar sem hún skrifar um einelti sem hún varð fyrir í níu ár í skólanum sem hún var í, hún varð a skipta um skóla til þess að geta haldið áfram að stunda námið sitt og geta átt gott líf.  Hvernig stendur á því að það sé svona mikið um einelti í skólum í dag, alveg sama hversu mikið er búið að tala um það innan skólana og upplýsa fólk um það hvað einelti getur leitt af sér fyrir þann sem verður fyrir því. Erum við gjörsamlega sofandi á verðinum, eða er okkur bara alveg sama um þau börn sem verða þolendur eineltis ?  Er okkur sama um það að skólagangan hjá þessum börnum sé lögð í rúst, að sálarlífið sé gjörsamlega brotið niður í marga smá mola sem erfitt er að líma saman aftur ?

Hvað er eiginlega í gangi hjá okkur hér í þessu þjóðfélagi ?  Sjálf varð ég fyrir einelti sem unglingur í skóla, og það er nokkuð víst að það einelti sem ég varð fyrir hafði mikil áhrif á mína skólagöngu. En það eru komin ein 34 ár síðan. Ótrúlegt hvað það er liðinn langur tími, mér finnst eins og að þetta hafi verið fyrir mesta lagi tíu árum síðan.  Það sem vekur furðu mína er að einelti er mjög mikið í gangi enn þá daginn í dag, það virðist ekkert lagast þó svo að það sé verið að taka á þessu eineltismálum alltaf af og til í fjölmiðlum t.d.

Mér finnst hún Hólmfríður sýna mikið hugrekki að blogga um þessa reynslu sína er varðar einelti hér á mbl.is og nefna meira segja skólann á nafn sem hún varð fórnarlamb eineltis.  Ég vona að einn daginn, að ég verði tilbúin til þess að segja frá minni sögu er varðar það einelti sem ég varð fyrir og tveir bræður mínir er við gengum í sama skólann úti á landi, sem varð til þess meðal annars að yngri bróðir minn kláraði aldrei sína skólagöngu.

Lifið heil.  Smile


Sorglegt !

Mér finnst skelfilegt að lesa þessa frétt. Geta ráðamenn þjóðarinnar ekkert gert ? Hvað á þetta fólk að gera eftir áramótin , sem á ekki til hnífs og skeiðar ?  44 % aukning hefur orðið í umsóknum um aðstoð, fjölskyldur um allt land, segir í fréttinni og það bætast fleiri og fleiri við.  Sorglegt að sjá hvernig Ísland er orðið í dag, og vona ég svo innilega að ráðamennirnir okkar sem eru að stjórna landinu, geri eitthvað til að hjálpa þessu fólki.  Ég verð að skera niður um meira en helming til að lifa út desember,  sem betur fer er það ekki orðið svona slæmt hjá mér.
mbl.is Sífellt fleiri leita aðstoðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynferðisofbeldi gagnvart börnum.

Þvílíkur viðbjóður að lesa þessa frétt. Hvað er að þessum mönnum sem gera slíkt. Það þarf að uppræta þennan viðbjóð og taka þessa gerendur og loka þá inni fyrir lífstíð eða eitthvað enn verra. Þessir gerendur eru stór skrímsli.
mbl.is Enn fleiri handtökur vegna barnaklámhrings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítið jólabarn.

Heart  Ég er mjög hamingjusöm í dag þrátt fyrir mikil blankheit í desember mánuði. Ég eignaðist litla ömmustelpu í morgun sem vó 17 merkur og 53 cm. Dökkhærð lítil hnáta og eru núna ömmustelpurnar mínar orðnar fjórar að tölu. Hinrik og Unnur til hamingju með fjórðu prinsessuna ykkar. Ég fór á Akranes í dag að líta á prinsessuna mína, hún er dökkhærð og meira  segja þá opnaði hún augun til að kíkja á ömmu.  Ég þori varla að nefna það, en svei mér þá, ég held að hún sé ansi lík  ömmu. Wink   Svona til gamans að þá voru báðar ömmur mínar fæddar 10.des 1910, þær voru Halldóra Magnúsdóttir frá Patreksfirði og Guðbjörg Elín Sæmundsdóttir frá Snæfellsnesi. Blessuð sé minning þeirra.

Selja fisk til Bretlands ?

Nei ! Róum  á önnur mið og látum Bretland eiga sig.
mbl.is Einhverjir hættir að selja fisk til Bretlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagarnir fljúga áfram...

Ég hef ekki gefið mér tíma til að blogga lengi. Ég er komin í skóla og er að vinna 100% vinnu með, vaktavinnu. Það gengur bara vel í skólanum hjá mér, en skólinn heitir Borgarholtsskóli í Grafarvogi. Ég er pínu stressuð yfir náminu þar sem heimaverkefnin koma hvert af öðru núna þessa dagana frá kennurunum og próf eftir 2 vikur. Ég stressa mig aðallega yfir heimaverkefnunum, vegna þess að ég er með fullkomnunaráráttu. Svo tefur tölvan mín mig pínulítið þar sem ég get verið lengi að pikka, laga og breyta. LoL

Það á víst að fara að byggja menntaskóla í Mosfellsbæ og það finnst mér frábært, ég óska Mosfellsbæjarbúum til hamingju með það. Sjálf bý ég í Kollafirði ( syðri ) og veit hvað það kostar að keyra alltaf í bæinn eftir öllu og sækja skóla og jafnvel vinnu,  ég stunda mína vinnu í Mosfellsbæ sem mér finnst mjög gott, þá lendi ég ekki í allri umferðinni til Reykjavíkur á morgnana.

Ekki meira í bili. Lifið heil ! Wink

 


Heather Mills.

 Sú er ekki af baki dottin ...
mbl.is Mills sögð hafa tryggt sér átta milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hef ekki bloggað lengi...

Ég hef ekki gefið mér tíma til að blogga í langan tíma. Ég er orðin svo upptekin í að vera byrjuð í skóla og vinna 100% vinnu með að ekki hef ég gefið mér tíma í mikið annað en í skóla og vinnu  eftir áramótin. Jú, annars gaf ég mér tíma til að fara til tannlæknis í dag og núna þarf ég bara að vega og meta hvernig ég klára það dæmi.Það er ansi dýrt að hafa heilbrigðar og falllegar tennur, ég þarf að láta laga 3 tennur í mér eða fá tennur sem heita Plantakróna. Þá eru þessar 3 tennur skrúfaðar fastar í góminn,þetta mun kosta mig í peningum 550-600 þúsund með allri vinnu.Ég er búin að safna pening inná sparibók í bankanum mínum sem rétt dugar fyrir þessari vinnu hjá tannlækninum,þarf samt að bæta smá við. En mér finnst vera orðið alveg sama hvað það heitir í dag,það er allt orðið svo dýrt hér á Íslandi.Ég finn fyrir miklum mun að versla í matinn í dag, 5000 krónurnar duga skammt og ég sem versla allt í Bónus. Á leiðinni heim frá tannlækninum í dag fór ég á N1 og tók bensín,þar sem það var komið nærri klikkað veður ákvað ég að láta dæla bensíninu fyrir mig á bílinn minn, þá tók ég eftir því að bensínlítrinn er kominn í 140 krónur. Svona get ég haldið áfram að telja...

Ekki veit ég hvar þetta endar allt saman þetta verðlag hér á landinu okkar. Eða nær væri að spyrja sig hvar byrjar það ?

Eigið þið góðar stundir.Wink


'' Rándýr áramótasteik ''

Ég fór í dag og verslaði í matinn fyrir gamlárskvöld eins og flestir gera. En ég verð að segja að þetta verður ansi dýr áramótasteik hjá mér þessi áramótin.  Það var ansi slæmt veðrið í dag 30.des  og ég fór og verslaði í Bónus á Smáratorgi í Kópavogi. Á leiðinni út úr Bónus og að bílnum mínum fuku af mér gleraugun mín Cool ,svo hvasst var þarna að ég var sjálf næstum fokin um koll eða út í buskann. Þetta voru gleraugu sem kostuðu 70-80 þús. fyrir ári síðan og er þeirra sárt saknað. Spurning hvort heimilistryggingin bæti þetta tjón. Annars er þetta ár sem er senn að líða búið að vera ágætt hjá mér og mínum og ég hlakka til að takast á við nýtt ár 2008. Ég sest á skólabekk eftir áramótin og er ég orðin frekar spennt fyrir því og hlakka bara til.Smile  Vona að þið kæru bloggvinir eigið góð og slysalaus áramót. Ég þakka ykkur árið sem er að líða og óska ykkur farsældar á nýju ári 2008.

Bhutto.

Það er hrein skelfing að þetta skuli hafa gerst í Pakistan, mig grunaði samt að svona færi fyrir Bhutto þegar hún sneri til baka og fór að berjast fyrir lýðræði í sínu heimalandi Pakistan. SORGLEGT ! Blessuð sé minning hennar. Ég er sammála fleirum bloggurum hér á mbl.is  með það að það er kaldhæðnislegt af Bush forseta Bandaríkjanna að senda frá sér samúðarskeyti og fordæma drápið á Bhutto. Það virðist vera svo að Bush komist upp með hvað sem er, eða hann kemst upp með hvað sem er. Því miður !

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband