Persónukjör í kosningunum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.2.2009 | 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Íslendingar á leið til Kanada | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.2.2009 | 08:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Látið karpið bíða til kosningabaráttunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 11.2.2009 | 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það eru fleiri, fleiri fjölskyldur sem berjast fyrir því að halda lífi hér í þessu landi okkar. Barnafjölskyldur, öryrkjar, eldri borgarar o.fl. Það heyrist afskaplega lítið frá Alþingi hvað á að gera til að aðstoða þá sem eru að missa fasteignir sínar, húsnæðislánin eru að yfirbuga marga svo ég tali nú ekki um bílalánin sem gjörsamlega eru að setja marga í þrot. Fólk lifir á yfirdrætti til að draga fram lífið, fólk er orðið atvinnulaust, sumir fá ekki einu sinni atvinnuleysisbætur. Það stendur til að fara að veiða hval, byggja upp atvinnu fyrir fólk sem hefur enga vinnu, fyrir fólk sem hefur jafnvel yfirdrátt frá banka sem er það eina sem reddar þessu fólki til að eiga fyrir mat og jafnvel þetta sama fólk er búið að stóla á það að fá atvinnu í vor þegar verður að fara að veiða hval, ef það verður, á Akranesi og í Hvalfirðinum. En hvað gerist þá ? Jú, VG eru æfir og ætla að stoppa allar hvalveiðar AF. Það er búið að byggja upp bæði á Akranesi og í Hvalfirðinum varðandi það að fara að veiða hval, iðnaðarmenn búnir að vera í allan vetur að vinna á fullu við þessar framkvæmdir, laga og breyta til að það verði allt klárt fyrir hvalveiðarnar. Þá koma VG og segja NEI. EKKI HVAL TAKK, kæru landsmenn !
Hvað er að hjá VG ? Ég hélt að nýja ríkisstjórnin ætlaði að bjarga því sem hægt væri að bjarga fyrir horn á áttatíu dögum. Svei mér þá, ég held að það hefði verið betra að senda þá umhverfis jörðina á áttatíu dögum, þeir hefðu getað komið til baka þegar búið væri að taka til hér á landi og komið almennilegt fólk við stjórn,þá yrði búið að fá nýtt fólk við stjórn, sem þyrstir ekki í völd, eins og þessir flokkar hér í landinu, sem sækjast eingöngu eftir valdi, eins og hefur sýnt sig og heldur áfram að sýna sig, hjá nýju stjórninni.
Ég sendi tölvupóst á ellefu þingmenn og bað þá um að svara mér skýrt með það. Hvað ætti að gera til að hjálpa þeim sem væru á barmi gjaldþrots hér útí þjóðfélaginu, barnafjölskyldur sem eiga ekki fyrir mat handa börnunum sínum ??? Af þessum ellefu þingmönnum svaraði mér bara einn þingmaður, hugsið ykkur EINN ÞINGMAÐUR. Og hann sagði mér að það væru þúsundir manna hér í þjóðfélaginu sem svona væri statt fyrir, hann hafði í rauninni ekkert annað svar nema jú að bankarnir í dag stæðu mjög höllum fæti, sem sé nýju bankarnir. En það var vitað að svo yrði með bankana.
Ég er ekki sú sem gefst svo auðveldlega upp, en það get ég svarið fyrir að ég er búin að missa alla trú á þetta fólk sem er á Alþingi í dag.
Lifið heil.
Bloggar | 11.2.2009 | 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggar | 10.2.2009 | 07:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ekki farin að finna til með honum ennþá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 23.1.2009 | 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Frjáls undan oki auðjöfra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 22.1.2009 | 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
deCODE semur við Landsbanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 20.1.2009 | 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Það eru ekki bara þessi háhýsi og stóru flottir turnar sem standa nú í kreppunni og allt orðið stopp, engar framkvæmdir hægt að sjá á þessum byggingum um alla höfuðborgina. Sárlegast finnst mér að horfa uppá það fjölskyldufólk sem byggðu sér húsin sín og geta ekki klárað að byggja. Sumt af þessu fólki er flutt inn í húsin sín með plast fyrir gluggum en ekki gler í gluggum eins og við eigum að venjast. Þetta fólk reynir að bjarga sér og flytur inn í hálfkláruð húsin sín sem er aðeins meira en fokheld. Ég gæti trúað því að það gnauði ansi vel inn um gluggana hjá þessu fólki sem hefur plast í gluggunum í staðinn fyrir gler, þetta fólk er komið í strand. Og verið þið viss um það, að þetta á bara eftir að versna hjá mörgum okkar hér á Íslandinu okkar góða. Ég held að ráðmenn þjóðarinnar ættu að fara að horfa í kringum sig og fara að kynna sér það hvernig komið er fyrir mörgum hérna, þá sérstaklega að kynna sér það hvernig ungu fjölskyldurnar koma sér áfram. Hvað með þessar fjölskyldur, hvað með öll börnin sem búa í þessu landi. Hvernig þjóðfélag viljum við, er það svona þjóðfélag sem við viljum búa í ? Ástandið í þjóðfélaginu er orðið mjög alvarlegt. Þessi stjórn sem er við völd núna hér á landi, getum við ekki treyst lengur. Og þessi flokkastefna í þessu landi er löngu orðin úrelt, þar reynir hver að ota sínum tota, algjör valdafíkn og enginn sýnir neina ábyrgð. Burt með flokkana og kjósum persónur.
Lifið heil.
Táknmynd góðæris eða kreppu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.1.2009 | 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mig langar að birta hérna á síðunni minni ljóð eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttur, en hún notaði skáldkonu nafnið ERLA. Það er heilmargt til í þessu ljóði hennar Erlu, sem mörgum væri holt að fara eftir í dag og reyndar alltaf. Þessi skáldkona er í miklu uppáhaldi hjá mér.
LÍFSREGLUR.
Vertu alltaf hress í huga,
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg né böl þig buga,
baggi margra þungur er
treystu því, að þér á herðar
þyngri byrði ' ei varpað er
en þú hefur afl að bera.
Orka blundar nóg í þér ...
Fyrr en harða fellir dóma,
fara skaltu ' í sjálfs þín barm
margur dregst með djúpar undir
dylur margan sáran barm.
Dæmdu vægt þíns bróður bresti ;
breyskum verður sitthvað á.
Mannúðlega ' og milda dóma
muntu sjálfur kjósa fá.
Lifið heil.
Bloggar | 15.1.2009 | 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
- annaeinars
- arnthorhelgason
- axelthor
- birnamjoll
- birnarebekka
- bjarnihardar
- brylli
- daudansalvara
- egill
- ejk
- erlan
- finni
- gammon
- gudjonbergmann
- gudrunp
- harhar33
- heg
- helgikr
- hildurhelgas
- holmfridurge
- huldumenn
- islandsfengur
- isleifur
- jaj
- jenfo
- joninaottesen
- jonsullenberger
- judas
- kaffi
- kolbrunb
- kristbjorggisla
- kristjanb
- ktomm
- larahanna
- lillo
- lindagisla
- marinomm
- marzibil
- nimbus
- prakkarinn
- rlord
- rosabla
- skari60
- smali
- sumri
- sylviam
- taoistinn
- thorhallurheimisson
- tigercopper
- tolliagustar
- vitinn
- zeriaph
- blossom
- skinogskurir
- westurfari
- gattin
- doggpals
- gudmunduroli
- heimssyn
- jonvalurjensson
- olinathorv
- fullvalda
- sifjan
- sailor
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar