Löngu komin tími til að taka á þessu...

Í Vancouver BC í Kanada er það nú bara þannig að þar fær fólk ekki að versla sér tjaldvagn,fellihýsi eða hjólhýsi nema geta sýnt það á pappírum að það eigi bíl sem getur dregið þessi tæki. Það er löngu kominn tími á það að taka á þessum málum hér. Það eru 3-4 ár síðan ég var í Kanada og þá vorum við spurð og þurftum að sýna fram á það að bílinn okkar réði við hjólhýsið sem við vorum að kaupa okkur. Þannig er það nú þa,r og ætti að vera búið að setja þetta í lög hér á Íslandi fyrir löngu síðan ( kannski er þetta komið í lög, en ekkert verið gert í því ) ótrúlegt hvað við hér heima erum aftanlega á merinni í svo mörgu. Það er eins og það skipti ekki okkur máli að leggja áherslu á þá hluti og breyta þeim til batnaðar, sem virkilega þarf að laga hér heima. Er lögreglan kannski búin að vera í sandkassaleik eins og ríkisstjórnin í dag og undanfarnar vikur ? Maður spyr sig.

Lifið heil og passið ykkur í umferðinni,þið sem eruð að ferðast. Það er ekkert grín að lenda í árekstri og ég tala nú ekki um við bíla með með alltof þung útilegutæki í eftirdragi, og sem bíll viðkomandi ræður engan vegin við t.d.  Wink


mbl.is Kyrrsettu tjaldvagninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna

Þetta er svo virkilega góð pæling hjá þér og löngu tímabært að það sé tekið á þessu atriði hér á landi.  Maður er skíthræddur að keyra  á eftir fellihýsi sem virkar eitt á ferð, jafnvel upp brekkur.  Engir speglar sjáanlegir eða neitt.

Góð kveðja úr sólinni á  Patró    Anna Guðmunds.

Anna, 18.7.2009 kl. 10:14

2 identicon

Já og sjáðu stóru Hjólhýsin. Stundum sér maður frekar litla bíla draga mjög svo stór hjólhýsi. Þetta er ömurlegt. Þetta stofnar öryggi okkar úti á vegum í mikla hættu. Eigðu ljúfa daga framundan.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 18.7.2009 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband